Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
Leiðbeiningar

Á þessum nýja vef Veiðihornsins er fullkomin netverslun. Við höfðum allan þann fjölda viðskiptavina okkar á landsbyggðinni í huga þegar netverslunin var sett upp.

Það er mjög einfalt að versla í netverslun Veiðihornsins og algjörlega öruggt. Hægt er að velja um tvennskonar greiðslumöguleika, annars vegar póstkröfu og hins vegar greiðslu með kreditkorti. Kerfið er dulkóðað og algjörlega öruggt.

Allar pantanir sem okkur berast fyrir hádegi eru sendar samdægurs, aðrar næsta dag.

Hægt er að nálgast upplýsingar um vörur í netversluninni eftir 2 leiðum. Þú getur ýmist valið netverslunina beint og valið þar vörur eftir vöruflokkum en einnig er hægt að velja t.d. Skotveiði og velja þar vörur eftir framleiðendum.

Netverslunin er einföld og skýrir sig annars sjálf þar sem hún leiðir þig í gegnum pöntunarferlið.

Ef þú ert ekki tilbúinn að panta á netinu er þér velkomið að hringja í Veiðihornið og panta í gegnum síma. Einnig getur þú sent pöntun þína á faxi. Og að lokum er hægt að senda pöntun eða fyrirspurnir á tölvupósti.

Við höfum einnig orðið vör við það að viðskiptavinir okkar nota vefinn til að afla sér upplýsinga um vörurnar okkar en heimsækja okkur síðan í Veiðihornið og eru búnir að taka ákvörðun um hvað skal versla.

Skotvopn og skotfæri
Viðskipti með skotvopn og skotfæri eru háð því að kaupandi hafi skotvopnaleyfi. Viðskiptavinir geta pantað skotvopn í netversluninni. Þegar það er gert sendum við til baka útfyllta umsókn um kaupaleyfi sem viðskiptavinur þarf að koma til lögreglustjóraembættis í sinni heimabyggð. Eftir að kaupaheimild berst frá lögreglustjóraembætti er hægt að afhenda skotvopnið og ekki fyrr.
Skotfæri eru einungis seld til þeirra sem hafa skotvopnaleyfi. Viðkomandi þarf því að senda Veiðihorninu númer skotvopnaleyfis. Gengið er úr skugga um að viðkomandi hafi skotvopnaleyfi áður en skotfæri eru send.

Skrifaðu okkur bréf - Heimilisfangið er: Veiðihornið, Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík
Sendu okkur fax - númerið er 561 4800
Sláðu á þráðinn - númerin eru 551 6760 í Hafnarstræti 5, 568 8410 í Síðumúla 8 og 696 4700 utan afgreiðslutíma
Sendu okkur tölvupóst - netfangið er veidihornid@veidihornid.is

Bestu kveðjur frá starfsfólki Veiðihornsins