|
Veiðihornið - Síðumúla 8 - 108 Reykjavík - sími 568 8410 Veiðihornið Síðumúla 8 var opnað síðla árs 2001. Vinsældir verslunarinnar hafa aukist ár frá ári. Fyrstu árin var verslunin eingöngu rekin í framhlið hússins Síðumúla 8 en í dag er Veiðihornið á nánast allri neðri hæð hússins. Í Veiðihorninu er mikið úrval af búnaði til stanga- og skotveiði en einnig landsins mesta úrval af fluguhnýtingaefni. Í versluninni hafa verið haldin fjölmörg fluguhnýtinganámskeið en einnig námskeið í stangarsmíði. Nýlega var tekið í notkun stórt byssuherbergi þar sem hægt er að skoða gríðarlegt úrval skotvopna á mjög aðgengilegan hátt. Fyrir vorið verður komið fyrir stærsta flugubar landsins og þó víðar sé leitað en flugubarinn verður 6 metra langur, á þrem hæðum eða samtals um 18 hillumetrar. Eins og gefur að skilja verður í sumar hægt að velja úr ótrúlegu úrvali af fengsælum veiðiflugum.
Veiðihornið og Veiðimaðurinn hafa staðið fyrir ýmsum viðburðum undanfarin ár. Sem dæmi má nefna að Mikael Frödin kynnti keilutúpur fyrst í Veiðimanninum Hafnarstræti 5 og Henrik Mortensen hefur í samstarfi við Veiðihornið haldið kynningar og flugukastnámskeið. Þá hafa Andy Murray, einn fremsti stangarhönnuður og Spey kastari Bretlandseyja að ógleymdum Hywel Morgan, heimsmethafa í fluguköstum sýnt listir sínar á Íslandi í boði Veiðihornsins og Veiðimannsins.
|
|
|
Forsíğa |
|
|
Tilboğ |
|
|
Netverslun |
|
|
Fluguhnıtingar |
|
|
Skotveiği |
|
|
Stangaveiği |
|
|
Kayak |
|
|
Útivist |
|
|
İmsar vörur |
|
|
Leiğbeiningar |
|
|
Fróğleikur |
|
|
Klúbburinn |
|
|
Námskeiğ |
|
|
Myndaalbúm |
Veiğihorniğ
| Hlutir í körfu: 0 stk | |||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||










