|
Sportbúðin - Krókhálsi 5 - 110 Reykjavík - sími 517 8050 Hvert ertu að fara?
Bráð ehf., rekstrarfélag Veiðimannsins og Veiðihornsins festi kaup á rekstri Sportbúðar Títan 1. mars síðastliðinn. Allnokkrar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði verslunarinnar og fleiri breytingar verða gerðar á næstu vikum og mánuðum. Á 350 fermetra verslunargólfi er boðið mikið úrval af búnaði fyrir stangaveiðimenn, skotveiðimenn og kayakræðara en einnig verður gott úrval af útivistarbúnaði þegar fram líða stundir. Húsnæðið býður upp á mikla möguleika til nýbreytni. Meðal annars verður Loftið í Sportbúðinni opnað þegar líður á sumarið en á Loftinu verður frábær aðstaða fyrir Opin hús, námskeið, kynningar og fleira en Loftið er hugsað sem félagsheimili klúbbfélaga Veiðimannsins, Veiðihornsins og Sportbúðarinnar. Við segjum nánar frá fyrirhugaðri starfsemi Loftsins þegar fram líða stundir. Við þá sem stunda sjóinn viljum við segja að verið er að snúa hjólunum af stað í kayakdeildinni. Fyrstu sendingar báta, fatnaðar og aukabúnaðar koma í hús nú í apríl og stefnan er tekin á bætt úrval og þjónustu við ört stækkandi hóp kayakræðara.
María Anna Clausen og Ólafur Vigfússon, eigendur Sportbúðarinnar. |
|
|
Forsíða |
|
|
Tilboð |
|
|
Netverslun |
|
|
Fluguhnýtingar |
|
|
Skotveiði |
|
|
Stangaveiði |
|
|
Kayak |
|
|
Útivist |
|
|
Ýmsar vörur |
|
|
Leiðbeiningar |
|
|
Fróðleikur |
|
|
Klúbburinn |
|
|
Námskeið |
|
|
Myndaalbúm |
Sportbúðin
| Hlutir í körfu: 0 stk | |||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||
|
|||







