Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
Fróðleikur
Hvað gerir gæfumuninn í upphafi laxveiðitímabils
Góð spurning og örugglega fátt um svör. Við ætlum þó að reyna að gefa góð ráð. Þegar veitt er við aðstæður eins og voru þann 1. og 2. júní síðastliðinn teljum við að þrennt skipti meginmáli um hvort árangur næst eða ekki. Heppni, reynsla og dugnaður. Reynum að útskýra þetta aðeins betur. Þú ert að veiða í laxveiðiá í upphafi veiðitíma. Allar aðstæður virðast ákjósanlegar, vatnið er gott, hitastigið mátulegt. Ef yfir einhverju er hægt að kvarta þá er fullbjart. Það kemur í ljós að lítið af fiski er komið í ána og ekkert sjálfgefið varðandi aflabrögð.
Skoða alla greinina
Sökktaumar
Nokkur orð um sökktauma
Skoða alla greinina
Það er komið vor
Nokkur heilræði um hvað þú skalt hafa í huga varðandi hjólin þín og línur áður en þú ferð í fyrsta veiðitúr ársins.
Skoða alla greinina
Val á flugustöng
Það er eðlilegt að fólki geti fallist hendur þegar flugustangafrumskógarnir í veiðibúðunum eru skoðaðir. Það má fullyrða að allir stóru, þekktu framleiðendurnir bjóði góðar stangir. Ekki er hægt að fullyrða að eitt merkið sé betra en annað. Við veiðimenn erum á hinn bóginn misjafnir og kaststíll okkar ólíkur. Því geta stangir hentað okkur misvel. Burtséð frá merkjum eru þó margir þættir sem þarf að hafa í huga við val á flugustöng svo sem lengd, línuþyngd og hraði stangarinnar en þessir þættir skipta mestu máli.
Skoða alla greinina
Um öndunarvöðlur
Það má skipta vöðlum í 2 flokka; neoprenvöðlur og öndunarvöðlur. Öndunarvöðlum getum við aftur skipt í 2 flokka; annarsvegar Gore-tex og hinsvegar "annað-tex" Hér að neðan er umfjöllun um vöðlur og umhirðu þeirra.
Skoða alla greinina
Fluguhnýtingaefni
Áttu stundum í erfiðleikum með að gera fallegan væng úr Bucktail (hjartardindli)?
Skoða alla greinina
Íslensk kennslumyndbönd í fluguhnýtingum.
Veiðihornið hefur framleitt 2 myndbönd með kennslu í fluguhnýtingum. Okkur hefur lengi fundist vanta eitthvað virkilega gott íslenskt kennsluefni á markaðinn og því réðumst við í þetta verkefni í vetur.
Skoða alla greinina