31.8.2010 - Kvöldmót Skotreynar og Veiðihornsins |
|
Kvöldmót Skotreynar og Veiðihornsins verður haldið miðvikudaginn 1. september á skotsvæði Skotreynar.
Mæting er klukkan 18:00 og hefst mótið klukkan 18:30.
Að þessu sinni verður keppt í tveim flokkum. Skotnar verða 60 dúfur plús 25 í úrslitum 5 efstu.
Verðlaun að þessu sinni verða glæsileg eða vandaður byssuskápur fyrir efsta sæti í B flokki, kassi af gæsaskotum fyrir annað sæti í B flokki og hörð byssutaska fyrir þriðja sæti í B flokki auk verðlaunagripa.
Í A flokki fær sigurvegari kassa af leirdúfuskotum og þrír efstu verðlaunagripi.
Það er því til mikils að vinna en aðalatriðið er að sjálfsögðu að mæta og hafa gaman af.
Allar nánari upplýsingar má finna á vef Skotreynar. www.Skotreyn.is
|
|
|
30.8.2010 - Gríðarleg skota- og gæsasala |
|
Sala á gæsaskotum hefur verið með ólíkindum góð síðustu daga og við munum ekki eftir viðlíka sölu árum saman.
Þetta á ekki að þurfa að koma á óvart því gæsaskotin frá Sellier & Bellot og Rio eru löngu þekkt fyrir gæði og gott verð.
Við eigum ennþá nóg af skotum í öllum helstu stærðum frá þessum framleiðendum og bendum á að líklega bjóðum við langbesta verð á gæsaskotum á Íslandi í dag en 42 gramma 2 3/4" gæsaskot kosta aðeins frá 1.895 krónum pakkinn (25 skot) og 3", 50 gramma skotin aðeins frá 2.395 krónum pakkinn (25 skot). Þá er vert að geta þess að 36 gramma rjúpnaskotin kosta aðeins frá 1.595 krónur pakkinn (25 skot) og æfingaskotin aðeins frá 890 krónum pakkinn (25 skot).
Ódýru gervigæsirnar seljast eins og heitar lummur að vanda. Við eigum þó reyndar von á því að þær seljist upp nú í september enda hafa veiðimenn áttað sig á því að eini munurinn á máluðum plastskeljum frá Kína og máluðum plastskeljum frá Ítalíu er verðið. 12 gervigæsir með lausum hausum og öllum festijárnum kosta aðeins 17.900.
|
|
|
26.8.2010 - Nýjar sendingar í stangaveiðideild. |
|
Ný sending frá Simms kom í hús í dag. Við eigum nánast allar stærðir í öllum gerðum af Simms vöðlum, jökkum og skóm á lager í Veiðihorninu Síðumúla 8.
Nú þegar komið er fram í seinni hálfleik á stangaveiðitímabili er allra veðra von og vonandi stutt í haustrigningarnar. Reyndir veiðimenn vita að það Simms er merki sem hægt er að treysta á í öllum veðrum. Vandaðu valið, vertu í Simms.
Í dag tókum við einnig upp enn eina sendinguna frá Waterworks og Lamson. Vanquish hjólin í stærðum 7.8 LT og 8 LT eru nú til aftur ásamt 10 LT. Hér eru að okkar mati á ferð bestu fluguhjól sem sögur fara af enda hafa þau slegið í gegn í Veiðihorninu í sumar og selst afar vel. Verð á Vanquish fluguhjólunum er frá 99.900. Á meðfylgjandi mynd má sjá Waterworks Vanquish fluguhjólið frábæra.
Túpurnar í haustveiðina eru að detta inn eins og við greindum frá fyrir fáeinum dögum og sama gildir um sendingar frá Sage, Redington og Rio sem eru rétt ókomnar.
|
|
|
24.8.2010 - Við kynnum langódýrustu gæsaskotin á markaðnum |
|
Í dag kom í hús fyrsta sending okkar frá Spænska skotaframleiðandanum Rio.
Rio skotin hafa ekki verið fáanleg á Íslandi um nokkurra ára skeið og hafa fjölmargir veiðimenn spurt okkur árlega um þessi frábæru skot sem nutu mikilla vinsælda fyrir fáeinum árum.
Rio skotin eru framleidd hjá einum stærsta haglaskotaframleiðanda heims sem framleitt hefur skot síðan 1896.
Við náðum mjög hagstæðum samningum við framleiðandann á vormánuðum og erum nú stolt af því að bjóða Rio haglaskotin á hreint ótrúlega góðu verði.
Gæsa- og rjúpnaveiðimenn geta nú valið skot frá tveim af traustustu og virtustu skotfæraframleiðendum Evrópu í verslunum okkar á besta verði.
Þú þarft ekki að festa kaup á þúsundum skota til þess að fá gott verð. Skjóstu í Veiðihornið Síðumúla 8 eða Sportbúðina Krókhálsi 5 og náðu þér í góð skot á bæjarins besta verði. Sjáðu hér:
Rio Target Load - 24 gr. æfinga og keppnisskot. Blýhögl. Hraði 410 m/s. 25 stk. Kr. 890.
Rio Target Load - 28 gr. æfinga og keppnisskot. Blýhögl. Hraði 400 m/s. 25 stk. Kr. 990.
Rio Game Load - 36 gr. 2 3/4" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 400 m/s. Haglastærð #5. 25 stk. kr. 1.595.
Rio Mini Magnum - 42 gr. 2 3/4" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 390 m/s. Haglastærðir #2, #4, #6. 25 stk. kr. 1.895.
Rio Magnum - 50 gr. 3" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 385 m/s. Haglastærðir #BB, #2, #4. 25 stk. kr. 2.395.
Sellier & Bellot Skeet Super - 24 gr. æfinga og keppnisskot. Blýhögl. Hraði 420 m/s. 25 stk. Kr. 990.
Sellier & Bellot Fortuna - 36 gr. 2 3/4" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 385 m/s. Stærðir 2,75mm (#6 US) og 3,25mm (#4 US). 25 stk. kr. 1.695.
Sellier & Bellot Magnum - 42,5 gr. 2 3/4" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 380 m/s. Stærðir 3 mm (#5 US), 3,5mm (#3 US) og 4mm (#1 US). 25 stk. kr. 2.195.
Sellier & Bellot Magnum - 53 gr. 3" veiðiskot. Blýhögl. Hraði 370 m/s. Stærðir 3mm (#5 US), 3,5mm (#3 US) og 4 mm (#1 US). 25 stk. kr. 2.595.
í Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5 færðu 42 gramma gæsaskot frá kr. 1.895 og 3" magnum skot frá 2.395. Þú færð líka 36 gramma rjúpnaskot frá 1.595 krónum og æfingaskotin frá 890 krónum.
Þú þarft ekki að kaupa þúsundir skota til þess að fá gott verð hjá okkur.
|
|
|
24.8.2010 - Nikko Stirling sendingin komin |
|
Nikko Stirling sendingin er að detta í hús.
Við eigum nú aftur Nikko Stirling fjarlægðarmælana vinsælu á aldeilis góðu verði eða aðeins 25.995.-
Við eigum einnig á lager aðrar vinsælar Nikko Stirling vörur svo sem myndavélarnar og nætursjónaukana hér að neðan.

Nikko Stirling Digital nætursjónauki. Sambærilegur annarri kynslóð af nætursjónaukum. Dugar vel í allt að 70 metra í svarta myrkri eða 100 metra þegar er stjörnubjart. Frábært verð. Aðeins 43.995.

Nikko Stirling myndavél. Hentar sérstaklega vel þeim sem liggja fyrir tófu en einnig sem öryggismyndavél til dæmis við sumarbústaðinn. Infrarautt ljós sem tryggir upptöku í svarta myrkri. Hreyfiskynjari. Tekur bæði kyrr- og lifandi myndir. Frábært verð. Aðeins 41.995.

Nikko Stirling fjarlægðarmælir. Trúlega mest keypti fjarlægðarmælir á Íslandi í ár enda er hér á ferð góður fjarlægðarmælir á fínu verði. Mælir 5 til 800 metra með +/- 1 metra fráviki. Hentar skotveiðimönnum og kylfingum. Frábært verð. Aðeins 25.995.
Nikko Stirling sendingin verður tilbúin til afgreiðslu síðar í dag. Þú færð Nikko Stirling í Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|