Tókum upp í dag nýja sendingu frá Scientific Anglers. Í þessari sendingu eru meðal annars Wet Tip flugulínur auk Sharkskin flugulínanna í nokkrum gerðum. Í Veiðihorninu Síðumúla 8 færðu ekki bara gott úrva af Scientific Anglers flugulínum því við bjóðum gott úrval af vinsælu fluguboxunum frá Scientific Anglers. Þessi flugubox eru ekki þau ódýrustu á markaðnum en klárlega einhver þau bestu af mörgum ástæðum. Boxin eru algjörlega vatnsheld, og fislétt. Scientific Anglers fluguboxin eru fáanleg með ýmsum innréttingum og í nokkrum stærðum. Hér að neðan eru dæmi
Box sem hentar vel fyrir silungapúpur og þurrflugur í silunginn
Tilvalið fyrir silungsveiðimanninn. Hér komast allar púpurnar fyrir í einu boxi. Margar gerðri eru til af þessum vinsælu fluguboxum frá Scientific Anglers hjá okkur. Renndu við og kíktu á Scientific Anglers fluguboxin í Veiðihorninu Síðumúla 8. Opið alla daga vikunnar. Já, líka á sunnudögum.
|
Til baka |





