Forsíğa
Tilboğ
Netverslun
Fluguhnıtingar
Skotveiği
Stangaveiği
Kayak
Útivist
İmsar vörur
Leiğbeiningar
Fróğleikur
Klúbburinn
Námskeiğ
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
12.7.2010 - Sendingar í şessari viku

Nokkrar nýjar sendingar eru hjá okkur í þessari viku.

Við erum að taka upp línusendingu frá Wulff í Bandaríkjunum.  Í sendingunni eru hinar vinsælu Ambush, Nymph og Monoclear línur í þyngdum frá #4 til #8.  Wulff línurnar eru margrómaðar og hafa Nymph, Signature og Monoclear línurnar notið mikilla vinsælda í gegnum árin.  Nýja Ambush línan hefur fengið mikið lof enda kastar hún sér nánast sjálf.  Þá skemmir ekki verðið fyrir á Wulff línunum því þær eru á 9.995 sem er líklega besta verð á flugulínum í úrvalsflokki.

Ný Simms sending kemur til landsins á morgun, þriðjudag og verður tilbúin til afgreiðslu um leið og við verðum búin að taka upp úr kössum.

Hjólasending frá Waterworks og Lamson er væntanleg um miðja viku og einnig ný línu- og boxasending frá Scientific Anglers.

Stór Kamasan sending kom í hús í dag.  Þú færð vinsælu, sterku og hárbeittu Kamasan þríkrækjurnar í Veiðihorninu og Sportbúðinni á fínu verði eða aðeins 1.095 krónur pakkann.

Að lokum er rétt að minnast á sendingar frá Sage, Rio og Redington í lok vikunnar en við segjum betur frá því þegar líður nær.


Til baka