Í nýrri auglýsingu okkar sem birtist í dagblöðum þessa dagana eru fáeinar flugur sem urðu viðskila nýjustu flugusendingu okkar. "Týndu" flugurnar eru nú komnar í leitirnar og verða komnar í sölu strax eftir helgina. Beðist er velvirðingar á þessu. Eftir stendur að í Veiðihorninu getur þú valið úr miklu úrvali af vönduðum og vel hnýttum flugum á góðu verði. Það er rétt að segja frá því að helstu kúluhausar kosta 220 krónur, allar helstu straumflugurnar eru á aðeins 290 krónur. Laxaflugur kosta aðeins 390 krónur, léttar túpur aðeins 390 og þyngstu túpurnar aðeins 450 krónur. Kíktu á flugurnar í flugubúðinni á netinu www.Flugan.is eða renndu við í Veiðihorninu Síðumúla 8 og veldu úr flugubar verslunarinnar en Veiðihornið er opið alla daga vikunnar. Já, líka á sunnudögum. Umfram allt gerðu verð og gæðasamanburð. Fjölmargir veiðimenn hafa áttað sig á því að það margborgar sig.
|
Til baka |


