Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
8.7.2010 - Neyðarsending frá Simms

Tvær sendingar frá Simms eru væntanlegar til okkar næstu daga.  Stór skipasending kemur í lok næstu viku og önnur minni með flugi vonandi á morgun.

Sala á Simms vörum hefur verið ævintýranleg það sem af er sumri og höfum við nú þegar selt meira en við áætluðum að við myndum selja á þessu ári.  Því varð úr að við þurfum að taka aukasendingar af þessum frábæru vöðlum, skóm og veiðifatnaði.

Það er athyglivert að fletta nýútkomnum veiðiblöðum og skoða veiðitengdar vefsíður og sjá í hverju veiðimenn eru en Simms er greinilega merkið sem reyndir veiðimenn velja við íslenskar aðstæður.  Þrautreyndir veiðileiðsögumenn sem fá önnur merki ókeypis kaupa Simms.

Á myndinni með þessari frétt eru nýju Simms Freestone vöðlurnar sem við erum að fá í hús í nokkrum algengustu stærðum en þessar vöðlur leysa nú eldri gerð af hólmi.


Til baka