Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
7.7.2010 - Gamalt taumaefni

Það er rétt að vekja athygli fluguveiðimanna á því að nota nýtt taumaefni, ekki síst nú þegar meira er af stórfiski í ánum eins og fregnir bera með sér.

Allt nælon girni, kastlínur og taumaefni "fúnar" og eldist illa.  Fátt er leiðinlegra en að slíta gamlan taum í góðum fiski.

Maxima taumaefnið þýska er trúlega mest keypta taumaefni á Íslandi og víðar mörg undanfarin ár.

Maxima breytti merkingum á taumaspólum fyrir tveim árum.  Nýja Maxima taumaefnið er merkt með gráum límmiða og gulu letri samanber mynd hér til hægri.

Til glöggvunar má sjá bæði eldri merkingu (þessa dökku) hér að neðan en einnig gráu miðana með gula letrinu en allt nýja taumaefnið frá Maxima er merkt þannig.

Vertu viss um að vera með nýtt taumaefni þegar þú leggur á vit ævintýranna og baráttuna við þann stóra.  Þú færð nýtt og ferskt Maxima taumaefni í flugubúðinni á netinu www.Flugan.is og öllum betri veiðibúðum.

Maxima taumaefni með gylltum og svörtum miða er að minnsta kosti tveggja ára gamalt.

 


Til baka