Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
6.7.2010 - Nýjar sendingar í þessari viku

Enn streyma sendingar í hús sem aldrei fyrr.

Í þessari viku tökum við upp sendingu frá Hardy í Englandi og eru þar á ferð nokkrar gerðri fluguhjóla en hjólin frá Hardy eru rómuð fyrir gæði.

Þá er komin ný sending frá Zpey í Noregi en það er skemmst frá að segja að nokkur Zpey settana seldust upp á svipstundu eftir heimsókn Henrik Kassow Andersen til okkar um daginn.

Enn ein sendingin frá Maxima er að koma í hús og nú fáum við einnig nýja töfra taumaefnið, TreaZure,  frá þessum þýska framleiðanda.  Maxima er án efa mest keypta taumaefni á Íslandi árum saman og ætti að fást í öllum betri veiðibúðum.

Ný Ron Thompson sending kemur í hús í lok vikunnar og fáum við nú óvænt aftur Ron Thompson öndunarvöðlurnar sem hafa verið uppseldar í nokkrar vikur.  Það sem við áætluðum að dygði í sumar kláraðist um miðjan júní.  Líklega eru þessar vöðlur einhverjar þær bestu á markaðnum í sínum verðflokki.

Þá var að koma stór sending frá Buldo í Frakklandi, troðfull af flotholtum, beituboxum og fötum.  Íslenskir ormaveiðimenn þekkja vörurnar frá Buldo sem bera af.

Þá er ótalin flugusending sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu.  Fullt af nýjum púpum, straumflugum, laxaflugum og túpum eru í þessari sendingu og munu fyrstu gerðir birtast í flugubar Veiðihornsins og í flugubúðinni á netinu www.Flugan.is innan skamms.

 


Til baka