Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
Veiðiflugur Íslands

Loksins er bókin Veiðiflugur Íslands nú fáanleg á ný.  Þessi vinsæla bók sem kom fyrst út árið 1997 og með sanni kölluð biblía veiðimanna og fluguhnýtara hefur verið ófáanleg um langt árabil.

Veiðihornið réðst í það nú í vetur að gefa þessa einstöku bók út aftur.  Bókin er óbreytt hvað varðar efnisinnihald en myndir eru mun skýrari og prentun betri en í upphaflegu útgáfunni.

Verði á Veiðiflugum Íslands hefur mjög verið stillt í hóf og kostar bókin nú ekki nema 3.995 krónur en til gamans má geta að hún kostaði 8.900 krónur fyrir hartnær 10 árum þegar hún kom fyrst út.

Til baka á forsíðu