|


Veiðihornið - Síðumúla 8 - 108 Reykjavík - sími 568 8410 Sportbúðin - Krókhálsi 5 - 110 Reykjavík - sími 517 8050 Veidimadurinn.is - Veiðibúðin þín á netinu
Afgreiðslutími haust 2010 Mánudagar til föstudagar - 9 til 18 Laugardagar - 10 til 16

Í stórri og rúmgóðri verslun Veiðihornsins Síðumúla 8 færðu landsins mesta úrval af öllu sem þarf í vel heppnaða veiðiferð.

Nýverið var tekið í notkun rammgert byssuherbergi í Veiðihorninu Síðumúla 8 Hér gefst viðskiptavinum Veiðihornsins kostur á að skoða úrval skotvopna á aðgengilegan og þægilegan hátt.

Hér sést hluti Benelli og Beretta skotvopna í Veiðihorninu Síðumúla 8 auk sýningarskápa með bestu fáanlegu sjónaukum frá Leupold og Burris.

Hluti veiðiriffla Veiðihornsins í Síðumúla 8.
Verið velkomin í Veiðihornið Síðumúla 8 Veiðihornið í Síðumúla 8 var opnað í árslok 2001. Í Veiðihorninu Síðumúla leggjum við áherslu á gott vöruúrval jafnt fyrir stanga- sem og skotveiðimanninn. Björt og rúmgóð verslun, gott aðgengi og næg bílastæði hafa gert Veiðihornið Síðumúla 8 að vinsælli búð.
Hér sést lítið brot af fluguhnýtingaefni Veiðihornsins. Veiðihornið í Síðumúla 8 var hannað með það í huga að auðvelt er að breyta versluninni eftir árstíðum. Á veturna er lögð mikil áhersla á fluguhnýtingar, stangaveiðivörur líður að vori og skotveiði þegar haustið nálgast.
Í mars 2005 var Veiðihornið Síðumúla 8 stækkað verulega. Eftir þá stækkun getum við boðið mun meira úrval af vönduðum veiðibúnaði. Stækkunin gerir það að verkum að þjónusta við skotveiðimenn eykst hjá okkur auk þess sem hægt er að bjóða gott úrval af fluguhnýtingaefni allt árið um kring en áður var megninu pakkað niður á sumrin.
Símanúmer Veiðihornsins í Síðumúla 8 er 568 8410
|