|

Veiðimaðurinn gamli tekur nú stakkaskiftum þegar við flytjum hann inn í 21. öldina. Veiðimaðurinn sem í hartnær 70 ár var lítil veiðibúð í gamla hluta Reykjavíkurborgar verður í ársbyrjun 2009 að veiðibúð allra landsmanna í internetinu.
Með öðrum orðum ætlum við að stórauka þjónustu við viðskiptavini okkar nær og fjær. Ekkert bílastæðavesen, engar stöðumælasektir Þú verslar bara heima í rólegheitunum og við sendumþér vörurnar heim.
Allar frekari upplýsingar um veiðimann nútímans birtast hér í byrjun nýs árs Hér að neðan má sjá myndir og upplýsingar um Veiðimann gærdagsins.
Veiðimaðurinn - Hafnarstræti 5 Hér hófst starfsemi Veiðihornsins í ársbyrjun 1998. Verslunargólfflötur er um 160 fermetrar. Verslunin er hlýlega innréttuð og hlaðin gömlum munum sem tengjast veiði. Trúlega er hér á einum stað eitt stærsta safn gamalla veiðimuna hér á landi. Í rúmgóðri verslun okkar í hjarta Reykjavíkur er mesta úrval landsins af fatnaði og útbúnaði til veiða.
Við höfum nú lokað versluninni Hafnarstræti 5. Viðskiptavinir eru boðnir velkomnir í aðrar verslanir fyrirtækisins
Veiðihornið - Síðumúla 8 - 108 Reykjavík - sími 568 8410 Sportbúðin - Krókhálsi 5 - 110 Reykjavík - sími 517 8050
Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 - Ferðamannaverslun ársins

Þórólfur Árnason, borgarstjóri Reykjavíkur ásamt Maríu og Ólafi við afhendingu verðlaunanna í Ráðhúsinu í nóvember 2003.
Veiðimaðurinn var valinn Ferðamannaverslun ársins 2003 af Reykjavíkurborg og Íslenskri verslun, Félagi íslenskra stórkaupmanna og Kaupmannasamtökum Íslands.
Þegar okkur voru færðar fréttirnar leið okkur eins og þegar við heyrum góða veiðisögu, áttum bágt með að trúa.
Einkum er lagt mat á þrennt við val á Ferðamannaverslun ársins en það er árangur í sölu til erlendra ferðamanna, þjónusta og tungumálakunnátta sem og útlit verslunar.
Við erum þakklát og stolt fyrir þessa viðurkenningu sem óneitanlega er hvatning til að gera enn betur fyrir viðskiptavini okkar íslenska sem erlenda.
Um mitt ár 2005 festum við kaup á vörumerki Veiðimannsins en Veiðimaðurinn ehf., umboðsaðili Abu Garcia til fjölda ára fór þá í gjaldþrot. Þetta vörumerki þekkja allir veiðimenn sem komnir eru til vits og ára en það hefur prýtt sportveiðiverslun í Kvosinni, hjarta Reykjavíkur í 65 ár. Eigendur Veiðihornsins munu gera þessu gamla og góða vörumerki hátt undir höfði í verslun Veiðihornsins í Hafnarstræti 5 af virðingu við Albert Erlingsson heitinn, stofnanda Veiðimannsins.
|