Forsíða
Tilboð
Netverslun
Fluguhnýtingar
Skotveiði
Stangaveiði
Kayak
Útivist
Ýmsar vörur
Leiðbeiningar
Fróðleikur
Klúbburinn
Námskeið
Myndaalbúm
Vinsælir vöruflokkar
Leiðbeiningar

Leiðbeiningar um pantanir skotvopna og skotfæra í netverslun Veiðihornsins.

Skotvopn - Þegar skotvopn eru pöntuð í netverslun Veiðihornsins fyllum við út og sendum umsókn um kaupheimild til lögreglustjóraembættis í viðkomandi byggðarlagi. Þegar því er lokið sendum við viðskiptavini tölvupóst og hann þarf í kjölfarið að hafa samband við lögreglustjóraembættið og skrifa undir umsóknina. Lögreglustjóraembættið sendir því næst kaupheimild til Veiðihornsins. Þegar við höfum fengið hana í hendur er hægt að afgreiða skotvopnið.

Skotfæri - Þegar skotfæri eru pöntuð í netverslun Veiðihornsins þarf undantekningalaust að senda með númer skotvopnaleyfis þess sem pantar. Starfsmenn Veiðihornsins ganga úr skugga um að viðkomandi hafi skotvopnaleyfi og geta afgreitt skotfæri að því loknu.

Skotfæri má einungis selja þeim sem hafa skotvopnaleyfi. Veiðihornið fer að sjálfsögðu eftir þeim reglum sem í gildi eru og afgreiðir ekki skotfæri til þeirra sem ekki hafa leyfi til. 

Við brýnum einnig fyrir viðskiptavinum okkar að það þarf ALLTAF og UNDANTEKNINGALAUST að sýna skotvopnaleyfi þegar skotfæri eru keypt í verslunum Veiðihornsins.

 

Til baka á forsíðu